Eina bakaríinu á Húsavík lokað

Eina bakaríinu á Húsavík, Heimabakaríi, hefur verið lokað.
Eina bakaríinu á Húsavík, Heimabakaríi, hefur verið lokað. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Heimabakaríi, eina bakaríinu á Húsavík, hefur verið lokað vegna rekstrarörðugleika.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem hékk í glugga bakarísins er gesti bar þar að í morgun.

Þar er íbúum bæjarins þakkað fyrir viðskiptin á liðnum árum.

Bakaríið á Húsavík, sem stendur við Garðarsbraut 15, á sér langa sögu undir nokkrum nöfnum. Bakarí opnaði fyrst í bænum árið 1923 og hét þá Brauðgerð Páls Jónssonar. Síðar kom Kaupfélag Þingeyinga inn í reksturinn og fékk bakaríið þá nafnið Brauðgerð KÞ.

Bakaríið fékk nafnið Heimabakarí árið 1999.

Tilkynningin sem hékk í glugga Heimabakarís er bæjarbúa bar að …
Tilkynningin sem hékk í glugga Heimabakarís er bæjarbúa bar að í morgun. Ljósmynd/Aðsend

Eldur kom upp í fyrra

Greint var frá því í fyrra að eldur hefði kviknað í bakaríinu og mikið tjón orðið. Þurfti því að loka í nokkrar vikur.

Eigandi þess, Hálfdán Sveinbjörn Kristinsson, sagði við mbl.is að tekjutap yrði mikið fyrir bakaríið og virtist sýna efa um hvort reksturinn myndi standa tekjutapið af sér.

Ekki náðist í Hálfdán Sveinbjörn við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert