Eyvindur Gunnarsson settur Landsréttardómari

Eyvindur G. Gunnarsson hefur verið settur í embætti dómara Landsréttar.
Eyvindur G. Gunnarsson hefur verið settur í embætti dómara Landsréttar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómsmálaráðherra hefur sett Eyvind G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, í embætti dómara við Landsrétt. Mun hann gegna embættinu frá og með morgundeginum til og með 28. febrúar 2029.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

„Eyvindur G. Gunnarsson lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1996 og meistaraprófi í lögum frá Duke-háskóla í Bandaríkjunum 1998. Þá öðlaðist hann réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1997 og leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti Íslands árið 2006,“ segir í tilkynningunni.

Segir þar enn fremur að Eyvindur hafi, að námi loknu, starfað um skeið í umhverfisráðuneytinu og í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Átt sæti í stjórnsýslunefndum og stjórnum

Hafi hann frá aldamótum til ársins 2006 verið sjálfstætt starfandi lögmaður en svo frá því ári starfað við lagadeild Háskóla Íslands, þar af sem prófessor frá árinu 2013 og sem forseti deildarinnar 2013-2016.

Hefur hann jafnframt verið dómandi við Endurupptökudóm frá 2021 og tekið sæti sem varadómari í Hæstarétti í tíu málum.

„Þá hefur Eyvindur átt sæti í stjórnsýslunefndum og stjórnum opinberra stofnana, þar á meðal í ráðgjafanefnd Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, stjórn Samkeppniseftirlitsins og stjórn Happdrættis Háskóla Íslands. Eyvindur hefur að auki ritað fjölda fræðirita og greina á sviði lögfræði,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert