Suðurnesjalína 1 verður tekin úr rekstri á miðnætti í kvöld fram til klukkan 7 í fyrramálið. Óhapp varð þegar grafið var í jarðstreng í Hamranesi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti.
Nóttin verður nýtt í að skoða skemmdir á línunni og vinna að viðgerðum.
Á meðan verður rafmagn á Suðurnesjum tryggt með eyjakeyrslu, þar sem virkjanir á Reykjanesskaga munu sjá svæðinu fyrir raforku.
Segir í tilkynningunni að ef allt gangi samkvæmt áætlun ættu íbúar og fyrirtæki ekki að finna fyrir truflunum.