Úttekt á greiðslum til Jóns lokið

Hólmavík.
Hólmavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Úttekt endurskoðunarfyrirtækisins KMPG á greiðslum til Jóns Jónssonar, fyrrverandi nefndarmanns í hreppsnefnd Strandabyggðar, er lokið og verða niðurstöðurnar birtar á vefsíðu sveitarfélagsins í þessari viku.

Þetta segir Salbjörg Engilbertsdóttir, skrifstofustjóri Strandabyggðar, aðspurð.

Jón fékk fyrr á árinu samþykkta kröfu sína um að rannsókn yrði gerð á þungum sökum sem á hann voru bornar af starfsmönnum sveitarfélagsins. Var hann meðal annars sakaður um fjárdrátt.

Úttekt KMPG átti að ljúka í síðasta lagi í dag og að sögn Salbjargar barst hún í morgun.  

Hún segir skýrsluna komna í skoðun bæði hjá Jóni og sveitarstjórn Strandabyggðar. Verður hún birt í síðasta lagi á miðvikudaginn. Einnig verður skýrslan lögð fram til kynningar á sveitarstjórnarfundi á þriðjudaginn í næstu viku.

Aðspurð kveðst Salbjörg ekki geta tjáð sig um niðurstöðu skýrslunnar.

Jón, sem er þjóðfræðing­ur og ferðaþjón­ustu­bóndi á Kirkju­bóli á Hólma­vík, sagði í sumar að lyk­ilstarf­smenn sveit­ar­fé­lag­ins hefðu sakað sig um sjálf­töku á fjár­mun­um úr sveit­ar­sjóði að upp­hæð 61.423.961 kr. þegar hann sat í hrepps­nefnd á síðasta kjör­tíma­bili sveit­ar­fé­lags­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert