Svandís: Kom þægilega á óvart

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra kynnir skýrslu um rannsóknir á byggingu flugvallar …
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra kynnir skýrslu um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni. mbl.is/Karítas

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir að niðurstaða í skýrslu um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni, sem kynnt var fyrr í dag, hafi komið sér þægilega á óvart. „Það er að segja, hversu afgerandi niðurstaða skýrslunnar er að þetta sé raunverulegur og góður valkostur. Það gefur tilefni til að við höldum þessari leið opinni,“ sagði Svandís við mbl.is að fundi loknum.

Hún segir næstu skref vera fyrir ráðuneytið að taka skýrsluna til frekari skoðunar. Síðan verði rætt við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega Reykjavíkurborg, en í skýrslunni voru meðal annars skoðuð áhrif af því að flytja innanlands-, kennslu- og einkaflug frá Reykjavíkurflugvelli á nýjan völl í Hvassahrauni.

Svandís segir að því næst verði skýrslan kynnt í ríkisstjórn og mat lagt á hvaða skref verði tekin í kjölfarið. Hún sé áfram um að halda þeim möguleika opnum að byggja upp flugvöll í Hvassahrauni. „Það er eitthvað sem ég tel mikilvægt að við gerum á grundvelli þessara upplýsinga og að við höldum þessum möguleika opnum. Ég tel það mikilvægt,“ segir Svandís.

Svæðið sem skoðað var fyrir mögulegan flugvöll í Hvassahrauni. Svarti …
Svæðið sem skoðað var fyrir mögulegan flugvöll í Hvassahrauni. Svarti ramminn er 5x5 km svæði sem reiknað er með að flugvöllur lendi innan. Til samanburðar er sýnt með bláum ramma 3x3 km svæði sem nægir fyrir innanlandsflugvöll sem einnig gæti þjónað sem varaflugvöllur fyrir mest allt flug um Keflavíkurflugvöll.

„Allar þessar breytur eru hagstæðar“

Í skýrslunni er þrenns konar mat sett fram. Í fyrsta lagi á veðurfarslegum aðstæðum. Í öðru lagi á náttúruvá á mögulegt staðarval og í þriðja lagi á áhrif á notkun innanlandsflugs, kennslu og einkaflugs. „Allar þessar breytur eru hagstæðar samkvæmt niðurstöðu hópsins,“ segir Svandís.

Í skýrslunni segir að veðurfars­lega sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að fara í upp­bygg­ingu flug­vall­ar í Hvassa­hrauni. Þá er flug­vall­ar­svæðið að mestu utan skil­greindra eld­stöðva­kerfa og lík­ur á gos­upp­tök­um á svæðinu eru hverf­andi, auk þess sem svæðið er ekki út­sett fyr­ir hraun­flæði lít­illa gosa sem eiga sér stað í ná­læg­ustu eld­stöð. Þá er flutn­ing­ur ekki tal­inn hafa mik­il lang­tíma­áhrif á inn­an­lands­flug.

Þar seg­ir meðal ann­ars að tak­mark­an­ir vegna vinds eða hliðar­vinds, skyggn­is skýja­hæðar eða ókyrrðar séu ekki meiri í Hvassa­hrauni en al­mennt er þekkt suðvest­an­lands.

Lifandi svæði, en óverulegar líkur á flæði

Varðandi náttúruvá er þó tekið fram að svæðið sé ekki með öllu undanskilið áhættu á hraunflæði frá nærliggjandi eldstöðvum. „Svæðið er ekki út­sett fyr­ir hraun­flæði lít­illa gosa en eigi gos sér stað í eld­stöðva­kerfi Krýsu­vík­ur, næst svæðinu, benda niður­stöður til þess að lík­legt sé að hluti at­hug­un­ar­svæðis­ins verði fyr­ir hrauni. Lík­ur á því minnka þó eft­ir því sem norðar kem­ur á svæðið,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Spurð út í þessi orð segir Svandís: „Já, þetta er lifandi svæði og eldvirkt svæði. En um leið kemur það fram í þessum tæknilegu niðurstöðum að það séu óverulegar líkur á því að þetta svæði nákvæmlega, þetta mögulega flugvallarstæði í Hvassahrauni, yrði fyrir áhrifum af hraunrennsli.“

Lagt er til í skýrslunni að taka frá svæði fyrir …
Lagt er til í skýrslunni að taka frá svæði fyrir flugvöllinn og vinna áfram að rannsóknum á svæðinu og möguleikum þess að byggja þar upp flugvöll. mbl.is/Árni Sæberg

Vill áhættumat á frekari virkjunarkosti

Telur hún þetta frekar ástæðu til að farið verði í áhættumat fyrir Reykjanesskagann í heild sinni og nefnir hún meðal annars möguleg virkjanaáform jarðhita sem eru í nýtingarflokki.

„En ég held að það skipti máli fyrir svæðið allt og þá á ég við Reykjanesskagann í heild, að við áhættumetum alla innviði þar og líka framtíðaráform t.a.m. um uppbyggingu orkumannvirkja. Við erum að tala um kosti í nýtingarflokki rammaáætlunar sem eru á Reykjanesskaga sem þarf að skoða og fara yfir,“ segir Svandís.

Í dag eru í orkunýtingarflokki rammaáætlunar fimm virkjanakostir á Reykjanesskaga. Þetta eru Stóra-Sandvík á Reykjanessvæði, Eldvörp í Svartsengissvæði og Sandfell, Sveifluháls og Austurengjar á Krýsuvíkursvæði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert