Í dag verða suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu og súld eða dálítil rigning, en yfirleitt þurrt um landið austanvert. Hiti verður á bilinu 5 til 11 stig.
Heldur hægari vindur verður á morgun og rigning með köflum, en lengst af þurrt á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.
Vaxandi norðaustanátt verður norðvestan til annað kvöld.