Þota frá Icelandair flutti lið Manchester United frá flugvellinum í Manchester til Porto í Portúgal í gær.
Þetta herma heimildir mbl.is en Loftleiðir, dótturfélag Icelandair, annaðist flugið.
Þotan flýgur svo með Manchester-liðið frá Porto til Manchester á morgun.
Manchester United mætir Porto í 2. umferð Evrópudeildarinnar á Estadio do Dragao-leikvanginum í Porto í kvöld
United varð að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn Twente frá Hollandi í fyrstu umferð keppninnar á Old Trafford í síðustu viku.