Ómar býst við áminningum úrskurðarnefndar

Ómar R. Valdimarsson ritar harðorðan pistil á Vísi um úrskurðarnefnd …
Ómar R. Valdimarsson ritar harðorðan pistil á Vísi um úrskurðarnefnd lögmannafélagsins. mbl.is/Eyþór

Ómar R. Valdimarsson lögmaður segist búast við áminningum frá úrskurðarnefnd lögmanna. Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísi. Þar segist hann búast við allt að þremur áminningum frá nefndinni. 

„Á allra næstu dögum geri ég ráð fyrir að fá eina, tvær eða jafnvel þrjár áminningar frá úrskurðarGraut lögmanna. Þá eru áminningarnar orðnar fleiri en ég get talið og fyrir ýmiskonar misalvarleg brot gegn lögum um fínilögmenn eða siðareglum fínilögmanna.“

Hann tekur hins vegar til varnar í greininni og segir það orðið sjálfstætt markmið „að tugta hann til.“ Hann grípur hins vegar til varnar og segir starfandi „fínilögmenn“ í úrskurðarnefnd fara með agavald yfir kollegum sínum.

Erfingjar lögræðiprinsa og laxveiðifínimanna

Segist hann ekki passa inn í staðalímynd lögfræðistéttarinnar og þar liggi hundurinn grafinn.

„Eins og gefur að skilja er óheppilegt að óhefluðum götustrák hafi tekist á gamals aldri að lauma sér inn í stétt lögmanna. Svoleiðis menn — ef menn skyldi kalla — eru ekki erfingjar lögfræðiprinsa úr háskólanum eða laxveiðifínimanna sem halda hlífiskildi yfir billjónera kynferðisafbrotafínimönnum. Og svona götulögmenn sleppa ekki inn á Kristlínga samkomur hjá Fíladelfíu — jafnvel þótt þeir myndu mæta nýrakaðir með drengslega einlægt bros í krumpufríum Dressman jakkafötum! Nei gott fólk, alls ekki,“ segir Ómar.

„ÚrskurðarGrautarmenn“ að tugta hann til 

Segir hann það orðið sjálfstætt markmið „úrskurðarGrautlögmanna“ að tugta hann til.

„Þá má auðvitað ekki segja það upphátt að réttarríkið Ísland er arfaslakt leikrit. Leikriti sem er ætlað að láta illa lyktandi pöpulinn halda að lögin séu blind og að allir notið réttlætis hér á hjara veraldar – óháð stétt eða stöðu. En sorrý með mig: Keisarinn er ekki í neinum fötum,“ segir Ómar.

Fer hann yfir úrskurðarnefndina sem skipuð er þremur aðalmönnum og þremur varamönnum. Ráðherra skipar einn, Hæstiréttur Íslands annan, og aðalfundur Lögmannafélags Íslands þann þriðja. Núverandi aðalmenn í nefndinni eru Einar Gautur Steingrímsson, Helgi Birgisson og Valborg Snævarr. Þá eru varamenn Hulda Katrín Stefánsdóttir, Grímur Sigurðsson og Helga Melkorka Óttarsdóttir.

Lítil tenging við raunhagkerfið 

„Aðalfínimennirnir og tveir af þremur varafínimönnum eru starfandi fínilögmenn á örlitlum samkeppnismarkaði, sem hefur verið falið að fara með agavald yfir kollegum sínum. Fínilögmannastétt sem telur 577 sjálfstætt starfandi fínilögmenn, 148 fulltrúa þeirra og 262 (ekki-alveg-jafn-miklir-fíni-) lögmenn sem innanhúslögmenn hjá hinu opinbera eða einkaaðilum.“

Segir hann aðalmenn hafa litla tengingu við „raunhagkerfið“ og að bakgrunnur aðalmanna í úrskurðarnefndinni einkennist af forréttindum.

„Einar Gautur á 80% hlut í Lausnir (fíni-) lögmannsstofu sf., hvar starfa fimm eða sex fínlögmenn og hefur þessi sanntrúaði maður meðhöndlað sannleikann, eins og hann skilur hann, í úrskurðarGrautnum sl. 20 ár. Valborg Snævarr, dóttir Ármanns Snævarr heitins, lagaprófessors og fyrrum hæstaréttardómara, starfar ein síns liðs sem fínilögmaður í Reykjavík. Hún hefur starfað í Grautnum og barið á götulögmönnum sl. 13 ár. Þá er Helga Melkorka spánýr varamaður í nefndinni, en hún dóttir laxveiðikóngsins Óttars Yngvasonar, eiganda Haffjarðarár. Þá er hún ein af eigendum fínimannalögmannsstofunar Logos, og var þar áður framkvæmdastjóri. Logos er stærsta fínimannalögmannsstofa landsins með meira en 50 fínilögfræðinga og fínilögmenn á sínum snærum. Einhver myndi ætla að þessi bakgrunnur fínifólks gæti haft þau áhrif að tenging þeirra við raunhagkerfið væri ekki sú allra besta – að fílabeinsturninn væri það hár, að þau glöggvuðu sig illa á því hvernig líf pöpulsins og götulögmanna væri í raun og veru.“

Vísar hann til þessa hóps sem Grautarins.

Ómar R. Valdimarsson.
Ómar R. Valdimarsson. Ljósmynd/Aðsend

„Halló?! Er einhver heima“ 

Fer Ómar yfir þau mál sem hann telur að úrskurðarnefndin sé að skoða 

„Götulögmaðurinn sem hér heldur á penna getur nefnt nokkur dæmi, sem brunnið hafa á eigin skinni. Í máli úrskurðarGrautsins 26/2022 var komist að þeirri niðurstöðu að það, að götulögmaðurinn krafðist þess að rugludallur á TikTok tæki út tjúllaðar ásakanir á hendur umbjóðanda sínum, væri „aðfinnsluverð“. Af hverju? Jú, út af því að krafan var gerð eftir kl. 15:00 á föstudegi og fresturinn sem gefinn var náði aðeins fram til dagsloka á næsta sunnudegi. Sem er sirka sá tími sem það tekur fyrir skröksögu á TikTok að ferðast 500 hringi í kringum jörðina. En vegna þessa örstutta frests var talið að rugludallurinn hefði „í reynd“ ekki „gefist raunhæfur kostur á að leita sér lögmannsaðstoðar, innan þess skamma frests sem henni var veittur til athafna að þessu leyti.

Halló?! Er einhver heima!?“

Tilgangurinn helgi meðalið 

„Bæði rugludallar og götulögmenn úr Kópavoginum vita það ósköp vel, að það þarf ekki að gera annað en að gúggla orðið „lögmaður“ til þess að finna búnka af lögmönnum – bæði götulögmönnum og fínilögmönnum. Og allir eiga þessir menn farsíma sem þeir kunna að svara í. Þetta er nokkuð sem Grautarmönnum yfirsást algjörlega, en gleymum því ekki að tilgangurinn helgar meðalið,“ bætir lögmaðurinn við. 

„Fínidómari“ hafi kvartað undan áhugaleysi 

Þá telur Ómar fleiri dæmi um að hann sé misrétti beittur af úrskurðarnefnd. 

„Og það eru fleiri dæmi. Í úrskurði 50/2023 komst Grauturinn að þeirri niðurstöðu að best væri að gera eina aðfinnslu og áminna mig tvisvar. Slík niðurstaða hlýtur að fela í sér að hafi brotið skelfilega af mér.

En haldið ykkur nú.

Grauturinn taldi að það væri „aðfinnsluvert“ að senda dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur tölvupóst í hæðnistón og gera athugasemdir við að fá ekki borgað nema 40% af vinnu sem unnin var í tengslum við dómsmál. Þá ákvað Grauturinn að áminna mig fyrir að mæta ekki í þinghald hjá Héraðsdómi Reykjavíkur á réttum tíma, þó svo að ég hefði áður látið vita að ég hefði ekki áhuga á að vinna meira ókeypis fyrir íslenska ríkið. Hvað það dæmi varðar lét Grauturinn sig svo það litlu varða að Ingibjörg Þorsteinsdóttir, fínidómarinn sem kvartaði sáran yfir áhugaleysi mínu á sjálfboðastörfum fyrir íslenska ríkið, hefði rangfært þingbækur dómsins – nokkuð sem hún hefur svo fengið ákúrur fyrir frá Landsrétti í öðru máli. Seinni áminninguna í þessu sama máli fékk ég svo fyrir að senda tölvupóst á kollega mína í stéttinni – bæði fínilögmenn og götulögmenn – og spyrja hvort að við ættum ekki að skrifa saman héraðsdómi bréf og kvartan undan því að dómari við réttinn ákvað að hýrudraga 26 manns um tugi milljóna. Og hvaða einkunn fékk þessi tölvupóstur minn? Jú, hann var talinn vega „að grunnstoðum dómskerfisins.“

„Liggur við að ég fari að gráta“

„Það liggur bara við að ég fari að gráta, þetta er svo átakanlega orðað... En það liggur kannski í hlutarins eðli, að þegar kerfið er jafn rotið og fúið og það er, má lítið út af bera til þess að allt fari til andskotans. Og það gæti verið súrt ef leiktjöldin myndu falla; ef skítugur almúginn áttaði sig á því að allt er þetta bara leikrit og að alla jafna sé niðurstaðan löngu gefin.“

Sitji sveitt við skrif 

„Ég gæti haldið áfram endalaust – enda af miklu meira en nægu að taka, þegar það kemur að soðningum frá úrskurðarGrautnum sem snúa að mér, ef mig skildi kalla.

Og eins og ég sagði í upphafi þessa pistils, þá sitja núna fínilögmennirnir þrír, Einar, Valborg og Helga Melkorka, sveitt við skrif á tveimur ef ekki þremur spánýjum áminningum, ef mér skjátlast ekki. Ég fæ þær svo sendar á allra næstu dögum. Annars vegar fyrir að kæra mig ekki um að vinna ókeypis fyrir konu út í bæ – sem svo kvartaði líka undan því að ég skildi voga mér að reyna að ná tali af henni, eftir að hún hafði samband við Grautinn, í þeirri von að hægt væri að ræða málin og komast að einhverri ásættanlegri niðurstöðu. Og hins vegar fyrir að leyfa ekki afar ósvífnum unglingum að ljúga upp á mig með því að birta samskipti mín við þau, sem sönnuðu hið gagnstæða.

Í ljósi bakgrunns fínimannanna í Grautarnefnd lögmanna og fyrra fimbulfambs þeirra, sem þar halda á penna, held ég ekki beinlínis í mér andanum, hvað þetta varðar. Og þegar öllu er á botninn hvolft, skiptir þetta allt saman litlu máli, enda eiga götulögmenn erfitt með að taka fínifólkið og fínikerfið sem það er búið að klastra saman alvarlega. Ekki síst þegar það þarf bara einn tölvupóst til þess að granda því," segir Ómar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert