Elliði vill stjórnarslit og kosningar í haust

Elliði segir kosningar vera eina leiðin fyrir sjálfstæðismenn til að …
Elliði segir kosningar vera eina leiðin fyrir sjálfstæðismenn til að endurnýja samtal við kjósendur án þess að gera það í gegnum sósíalísk viðmið. mbl.is/Kristófer Liljar

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir að slíta eigi stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknar.

Þetta sagði hann í Bítinu á Bylgjunni en á facebook skrifar Elliði:

„Það er ekki eftir neinu að bíða, drífum í að kjósa strax í haust!!! Kosningar eru eina leið okkar Sjálfstæðismanna til að endurnýja samtal við kjósendur án þess að þurfa stöðugt að gera það í gegnum sósíalísk viðmið VG (og Framsóknar).“

Enn syrt­ir í ál­inn hjá stjórn­ar­flokk­un­um

Enginn stjórnarflokkur mælist vel um þessar mundir.

Vinstri græn og Framsókn hafa hlutfallslega tapað mest, en í könnun Prósents fyrir Morgunblaðið í síðustu viku mældust Vinstri græn með 3% og Framsókn með 5%.

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 12% og hefur aldrei áður mælst með jafn lítið fylgi.

Jón Gunnarsson.
Jón Gunnarsson. mbl.is/Óttar

Jón segir stöðuna á stjórnarheimilinu vera galna

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var einnig með Elliða í Bítinu og var harðorður um stjórnarsamstarfið. En hann gekk ekki svo langt að segja að það þyrfti að slíta samstarfinu.

„Nú hefur minnsti flokkurinn í þessu samstarfi sagt: Við ætlum ekki að ræða við ykkur frekar um útlendingamál,“ sagði Jón.

„Þannig þetta er auðvitað orðin einhver galin staða á þessu stjórnarheimili. Hún hefur svo sem verið það í svolítinn tíma að mínu mati,“ sagði Jón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert