Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri í Strandabyggð, hélt velli þegar greidd voru atkvæði um vantrauststillögu á hann á fundi sveitastjórnar á Hólmavík í kvöld.
Tillaga um vantraust var felld með þremur atkvæðum gegn tveimur. Matthías Sævar Lýðsson sveitastjórnarmaður staðfesti þetta við mbl.is en hann lagði tillöguna fram.
Þorgeir er oddviti T-lista Strandabandalagsins en Sævar situr í sveitastjórn fyrir A-lista Almennra borgara.
Forsaga málsins er sú að Jón Jónsson, fyrrverandi sveitastjórnarmaður í Strandabyggð, fór fram á að rannsókn yrði gerð á greiðslum sem hann og hans fyrirtæki fékk frá sveitarfélaginu. Hann hafi verið borinn þungum sökum af starfsmönnum sveitarfélagsins og þar á meðal oddvitanum. Var hann til að mynda sakaður um fjárdrátt.
KPMG sá um úttektina og komst að þeirri niðurstöðu að greiðslur til Jóns og fyrirtækis á hans vegum hafi allar farið í gegnum sveitastjórnina.
„Ekki er annað að sjá en greiðslur til Jóns Jónssonar svo og þeirra fyrirtækja og stofnana sem eru/voru í hans eigu eða sem hann tengdist með stjórnarsetu, á þeim tíma sem hann sat í sveitarstjórn Strandabyggðar, þ.e. á árunum 2010-2014 og 2019-200 hafi verið í samræmi við samninga og samþykktir sveitarstjórnar.“
Í framhaldinu lagði Matthías fram vantrauststillöguna sem greidd voru atkvæði um í kvöld.