Vísa hópi Venesúelabúa á brott

Ljósmynd/Aðsend

Til stendur að vísa hópi fólks frá Venesúela á brott frá landinu í kvöld. Formaður FTA segir dæmi um að fólk sæki um hæli á Spáni við millilendingu. Stjórnarandstæðingur í Venesúela gagnrýnir aðgerðir lögreglu á Íslandi.

Í tilkynningu frá No Borders-samtökunum kemur fram að mótmæli fari fram í Leifsstöð í kvöld vegna brottvísunarinnar. 

Kemur þar einnig fram að aðgerðasinninn Betsy Contreras García sé meðal þeirra sem hafi verið handtekin og eigi að flytja úr landi.

Segir að Betsy hafi tekið virkan þátt í mótmælum flóttafólks frá Venesúela á Íslandi og komið fram fyrir hönd þess opinberlega í fjölmiðlum. Rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af velferð hennar.

Andstæðingur Maduro gagnrýnir íslensk stjórnvöld

Einn af þekktustu stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Nicolás Maduro, Antonio Ledezma, tjáði sig um aðgerðir íslenskra stjórnvalda gegn flóttafólki frá Venesúela í færslum á Instagram og X á föstudaginn.

Sjálfur hefur Ledzme verið í útlegð á Spáni síðan 2017. Hafði hann sætt þungum pólitískum ofsóknum af hálfu yfirvalda í Venesúela vegna starfa sinna og flúði landið eftir að hafa verið fangelsaður fyrir landráð.

Ledzeme gagnrýndi brottvísanir flóttafólks frá Venesúela sem og gagnrýndi sérstaklega handtöku Betsy, sem hefur barist gegn þvinguðum „sjálfviljugum“ endursendingum til Venesúela.

Antonio Ledezma einn þekktasti stjórnarandstæðingur ríkisstjórnar Nicolás Maduro.
Antonio Ledezma einn þekktasti stjórnarandstæðingur ríkisstjórnar Nicolás Maduro. AFP

Fólk handtekið fallist það ekki á heimför

Jón Sigurðsson formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd (FTA) kvaðst ekki hafa borist fregnir um að fjöldabrottvísun væri fyrirhuguð í kvöld er blaðamaður mbl.is hafði samband.

Kvaðst hann aftur á móti þekkja til máls Betsy sem hafi verið handtekin fyrir nokkrum dögum en sleppt aftur úr haldi. Hann segir það að fólk sé handtekið þýði að það hafi ekki fallist á sjálfviljuga heimför.

„Mér skilst að það hafi átt að hneppa hana í gæsluvarðhald, sem sagt Betsy, en henni var forðað frá því. En það þýðir þó ekki að hún hafi verið laus frá því að brottvísunin yrði framkvæmd.“

Fái vernd á Spáni í millilendingu

Segir Jón FTA hafa verið í sambandi við lögfræðinga á Spáni, sem og aðila frá Venesúela sem áður voru umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi.

Að þeirra sögn hafi það átt sér stað í tengslum við millilendingar á Spáni, þar sem Útlendingastofnun stendur að flutningum á fólki til Venesúela í svokallaðri „sjálfviljugri heimför“, að fólk hefur sótt um vernd á Spáni við komuna þangað og fengið heimild til landgöngu og hefur þannig sloppið við það að vera sent til heimalandsins.

Segir Jón stigsmun á milli sjálfviljugrar heimfarar og brottvísunar en athugavert sé að Spánn meti sem svo að fólkið eigi að hljóta málsmeðferð þar í landi. Það geti aftur á móti einnig orðið til þess að það verði sent aftur til Íslands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

„Þá hefur okkur borist til eyrna að Útlendingastofnun hafi hætt við flutninga til Venesúela sem áttu að fara fram með millilendingu á Spáni og að stofnunin sé að skoða aðra möguleika varðandi kosti við framkvæmdir slíkra sendinga til Venesúela.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert