Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, kemur til fundar Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan 16 í dag.
Að fundi loknum hyggst forseti ávarpa fjölmiðla.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.
Bjarni sagði í Silfrinu á Ríkisútvarpinu í gær að hann ætlaði að biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti. Benti hann á að hann hefði sagst á sunnudag myndu biðjast lausnar, ef ekki næðist sátt um samstarf ríkisstjórnarinnar fram að kosningum innan flokkanna sem að henni standa.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/14/bjarni_mun_bidjast_lausnar/
Bjarni fór á fund Höllu í gær og óskaði þar eftir því að þing yrði rofið. Halla fundaði síðar sama með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna og í kjölfarið með Svandísi Svavarsdóttur, formanni VG, og Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknar.
Í morgun fundaði Halla svo með Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis.