Fundur í kjaraviðræðum aðildarfélaga Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst klukkan 9 í morgun í húsakynnum ríkissáttasemjara og áætlað er að hann standi til klukkan 12.
Kennarar eru samningslausir og hafa samþykkt verkfall í samtals níu skólum: fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Þá er til skoðunar að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall í einum framhaldsskóla til viðbótar.
Formaður Kennarasambands Íslands vill að laun kennara séu sambærileg við laun háskólamenntaðra sérfræðinga á almenna markaðnum.
„Við horfum til þess að laun kennara eigi að samsama því virði sem samfélagið vill meta starf kennara. Við teljum okkur vera á þeim stað að vera vanmetnir þar,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í samtali við mbl.is í síðustu viku.