Íris ekki í landsmálin

Íris Róbertsdóttir ætlar að vera áfram bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Íris Róbertsdóttir ætlar að vera áfram bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur lýst því að hún gefi ekki kost á sér í landsmálin „í þetta skiptið", eins og hún orðar það í færslu á Facebook-síðu sinni.

Íris hefur að undanförnu verið orðuð við framboð í komandi þingkosningum, eins og fram hefur komið á mbl.is, en ekki komið fram fyrir hvaða flokk.

„Það hefur talsvert verið skrafað um það á opinberum vettvangi síðustu vikurnar hvort að ég sé á leið inn í landsmálin og það hefur færst í aukana nú þegar ljóst er að Alþingiskosningar standa fyrir dyrum,“ ritar Íris og bætir við:

„Ég er þakklát fyrir það mikla traust sem margir hafa sýnt mér þegar leitað hefur verið til mín um að stíga þetta skref. Ég hef velt þessu alvarlega fyrir mér, ekki síst í ljósi þess að mér hefur þótt mikið vanta uppá að þingmenn hafi sinnt okkur hér í Eyjum og raunar vantað mikið uppá samtal ríkisins við sveitastjórnarstigið í heild sinni.“

Kraftarnir nýtast betur í Eyjum

„Hlutir gerst of hægt. Menntamálin eru mér líka mjög hugleikin og þar þarf að stíga ný skref til að tryggja börnum tækifæri til framtíðar. Raunar erum við þegar komin af stað í þá vegferð hér í Eyjum m.a. með verkefninu Kveikjum neistann,“ skrifar hún.

„En að þessu sögðu þá er niðurstaða mín sú að kraftar mínir munu nýtast betur við þau verkefni sem ég hef sinnt í Eyjum og hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í landsmálin í þetta skiptið. Ég hlakka til að vinna áfram að hagsmunum okkar hér í Eyjum sem bæjarstjóri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert