Mótmælandi laus úr haldi

Í mótmælunum krafðist félagið Ísland Palestína, meðal annars, þess að …
Í mótmælunum krafðist félagið Ísland Palestína, meðal annars, þess að Ísland bindi enda á stjórnmálasamstarf við Ísrael og beiti ríkið viðskiptaþvingunum. mbl.is/Eyþór

Mótmælandi sem var handtekinn í morgun fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu hefur verið látinn laus úr haldi.

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir hann hafa verið látinn laus eftir skýrslutöku.

Mótmælendur á vegum félagsins Ísland Palestína mótmæltu fyrir utan utanríkisráðuneytið í morgun.

Ásmundur kveðst ekki geta sagt til um hvort að mótmælendur hefðu atað málningu á ráðuneytið eða einhverjum öðrum rauðleitum vökva.

Hann segir að sjá þurfi til hvort einhverjar varanlegar skemmdir hafi orðið á húsnæði ráðuneytisins eftir verknað dagsins.

Í mótmælunum krafðist félagið Ísland Palestína, meðal annars, þess að Ísland bindi enda á stjórnmálasamstarf við Ísrael og beiti ríkið viðskiptaþvingunum.

mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert