Beint: Auðlindir, samkeppnismál og almannaþjónusta

46. þing ASÍ hefst í dag. Fyrsti dagur þingsins verður …
46. þing ASÍ hefst í dag. Fyrsti dagur þingsins verður með opinni dagskrá, en Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ, flytur opnunarávarp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þing ASÍ hefst í dag, en ólíkt fyrri þingum verður opin dagskrá fyrsta dag þingsins og getur almenningur fylgst með allri dagskránni fyrsta daginn bæði á þinginu sjálfu sem og í streymi sem hægt er að fylgjast með hér að neðan.

Á þinginu verða fyrirlestrar og erindi um þau málefni sem helst verða til umfjöllunar á þinginu sjálfu, en þar á meðal eru auðlindamál, samekppnismál og þjónusta í þágu almennings.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, mun flygja opnunarávarp og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, ávarp í framhaldinu, en því næst verður hin norksa Karen Ulltveit Moe með fyrirlestur um skattlagningu auðlindarentu og hvaða leið var farin í Noregi.

Heildardagskrána má sjá hér fyrir neðan, en þinginu lýkur klukkan 15:30 í dag.

10:00 Fundarstjóri býður fólk velkomið

Ávarp Finnbjörns A. Hermannssonar forseta ASÍ

Ávarp Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, formanns BSRB

10:30-11:30 AUÐLINDIR Í ÞÁGU ÞJÓÐAR  Auðlindir

Karen Ulltveit Moe – Skattlagning auðlindarentu – Norska leiðin
Í kjölfar erindis verður rætt við Karen um fyrirkomulag auðlindagjalda í Noregi og hvernig reynsla Norðmanna gæti nýst Íslendingum

11:30-11:45 Kaffihlé

11:45-12:45 AUÐLINDIR Í ÞÁGU ÞJÓÐAR  Orkumál

Tinnu Traustadóttur, framkvæmdastjóri orkusölusviðs Landsvirkjunar
– Raforka er súrefni samfélagsins

Pallborð: Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar
Bjarni Bjarnason, fyrrum forstjóri Orkuveitunnar
Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri 

12:45-13:30 Hádegishlé

13:30-14:30 SAMKEPPNI Í ÞÁGU SAMFÉLAGS

Nick Shaxson fjallar um samfélagsleg áhrif fákeppni og einokunar
Í kjölfar erindis verður rætt við Nick um samkeppnismál í innlendu og erlendu samhengi

14:30-15:30 ÞJÓNUSTA Í ÞÁGU ALMENNINGS

Erindi frá Göran Dahlgren og Lisa Pelling um einkavæðingu heilbrigðisþjónustu í Sviþjóð

Erindi frá Kristínu Hebu Gísladóttur um aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir launafólk

Pallborð: Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
Alma D. Möller, landlæknir
Jón Magnús Kristjánsson, bráðalæknir
Runólfur Pálson, forstjóri Landspítalans

15:30 Opinni dagskrá lokið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert