Jens Garðar býður sig fram í oddvitasæti

Jens Garðar Helgason.
Jens Garðar Helgason. Ljósmynd/Aðsend

Jens Garðar Helgason býður sig fram sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.  

Þetta kemur fram í í tilkynningu sem hann hefur sent á fjölmiðla. 

Þar segir að Jens Garðar hafi langa reynslu af störfum í atvinnulífi og sveitarstjórn. Hann segir framboðið byggt á þörf fyrir sterka forystu sem gæti betur hagsmuna Norðausturkjördæmis.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum samfélagsins og trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt áframhaldandi framfarir og velferð í kjördæmi sem og landinu í heild,“ segir Jens Garðar.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið sterkt hreyfiafl íslenskra stjórnmála og þjóðlífs. Ég vill leggja mitt af mörkum í baráttu fyrir framgangi sjálfstæðisstefnunnar,“ er haft eftir honum í tilkynningu. 

Jens Garðar er 47 ára gamall, fæddur og uppalinn á Eskifirði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1996, stundaði nám við viðskiptafræði í Háskóla Íslands frá 1997 til 2000 og hefur MBA-gráðu frá Norwegian School of Economics. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði og á þrjú börn. Eiginkona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir heilaskurðlæknir.

Skapa umhverfi sem hvetur

Jens Garðar hefur lengi starfað í forystu sjávarútvegsins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sveitarstjórnarstigi. Hann var formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á árunum 2014 – 2020, varaformaður Samtaka atvinnulífsins 2017- 2020 og formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð tvo kjörtímabil.  

„Hugmyndaauðgi, kjarkur og þor einstaklingsins er, og hefur verið, drifkraftur hagsældar Íslendinga. Það er hlutverk ríkisvaldsins að skapa umhverfi sem hvetur, en ekki letur, áframhaldandi fjárfestingar og framþróun,“ segir Jens Garðar.

„Í þessu starfi vil ég leiða Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi. Rödd athafnafrelsis þarf að heyrast betur. Forsenda uppbyggingar öflugs velferðarkerfis er meiri verðmætasköpun. Frjálst fólk framleiðir meira.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert