Oddný býður sig ekki fram

Oddný G. Harðardóttir.
Oddný G. Harðardóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Oddný G. Harðardóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Suður­kjör­dæmi, ætlar ekki að sækjast eftir sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu. 

Þessu greinir Oddný frá á Facebook og segist hafa melt ákvörðunina með fjölskyldu sinni í þó nokkurn tíma, „og er nú ákveðin í að þetta verði mitt síðasta kjörtímabil á þingi“.

Ég þakka þeim traustið sem hafa hvatt mig til að bjóða mig fram að nýju og þakka stuðning og samveru í pólítíkinni í bráðum 16 ár.“

Oddný segist þó ekki vera kveðja alveg strax þar sem hún muni gegna þingmennsku fram að næstu kosningum sem eru boðaðar 30. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert