Samningur um 800 íbúðir á Ásbrú undirritaður

Pálmi Freyr, Sigurður Ingi og Halldóra Fríða við undirritun samnings …
Pálmi Freyr, Sigurður Ingi og Halldóra Fríða við undirritun samnings í dag. Ljósmynd/Aðsend

Reykjanesbær, ríkið og Kadeco - þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hafa undirritað samning um uppbyggingu á Ásbrú. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kadeco. 

Í tilkynningu segir að samningurinn feli meðal annars í sér að byggðar verði 800 íbúðir á Ásbrú auk uppbyggingar samfélagslegra innviða, almenningsrýmis og nýrra bygginga undir þjónustu fyrir íbúa.

„Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum hefur aukist mikið og aðstæður á Ásbrú gera það að verkum að þar er hægt að byggja hraðar upp sjálfbært íbúðahverfi en víða annars staðar. Á Ásbrú er fjölbreytt samfélag sem mun styrkjast enn frekar með uppbyggingu nýrra íbúða og innviða. Markmið samningsins er meðal annars að mæta aukinni eftirspurn eftir húsnæði, skapa fyrirsjáanleika og að hefja skipulega þéttingu og þróun byggðar á Ásbrú,“ segir í tilkynningu. 

Samkomulagið var undirritað í Andrews Theater á Ásbrú af Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formanni bæjarstjórnar og starfandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco.

Hraða uppbyggingu 

„Við ætlum að hraða uppbyggingu og mæta húsnæðisskorti á íbúðamarkaði. Uppbygging á Ásbrú er bæði spennandi og þarft verkefni og það er mikið fagnaðarefni að við höfum skrifað undir samkomulag um næstu skref. Á svæðinu er allt til staðar sem íbúðahverfi þarf til að þar haldi áfram að byggjast upp blómleg byggð og með þessari uppbyggingu verður hægt að leggja meira í samfélagslega innviði. Með því að nýta núverandi innviði svæðisins getum við hraðað framkvæmdum og komið til móts við íbúðaskort sem er ákjósanlegt fyrir alla aðila,“ er haft eftir Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco í tilkynningunni.

Markar tímamót 

„Við fögnum þeim samningi sem var undirritaður hér í dag en hann markar tímamót í þróun Ásbrúarhverfisins til framtíðar. Við höfum lagt áherslu á mikilvægi samvinnu ríkisins og sveitarfélagsins þegar mótuð er sameiginleg framtíðarsýn fyrir hverfið og hér erum við formlega lögð af stað í þá vegferð. Á Ásbrú eru gríðarleg tækifæri og við hlökkum mikið til að sjá hverfið halda áfram að vaxa og blómstra,“ er haft eftir Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formanni bæjarráðs og starfandi bæjarstjóra Reykjanesbæjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert