Úlfur Einarsson, forstöðumaður meðferðarheimilisins Stuðla, hefur verið sendur í ótímabundið leyfi.
Barna- og fjölskyldustofa sendi Úlf í ótímabundið leyfi í gær og staðfesti Úlfur þær fregnir við fréttastofu Ríkisútvarpsins fyrir skömmu. Kvaðst hann ekki vilja tjá sig opinberlega um málið að öðru leyti og vísaði á Barna- og fjölskyldustofu.
Stuðlar eru meðferðarheimili fyrir börn og unglinga á aldrinum 12 til 18 ára
Ástandið á Stuðlum var til umfjöllunar í þætti Kveiks í gærkvöldi en þar lýsti starfsfólk og fyrrverandi skjólstæðingur meðferðarheimilisins óboðlegum aðstæðum.
Var Úlfur sjálfur meðal þeirra sem ræddu opinskátt um erfiðar aðstæður á heimilinu sem vegna álags og eðli mála skapi hættu fyrir börnin sem þar eru vistuð sem og starfsfólk.
Úlfur sagði meðferðarheimilið vera það eina sem geti vistað drengi sem sýni alvarlega hegðunarerfiðleika, brjóti af sér eða séu í mikilli neyslu.
Þrjár deildir séu reknar á meðferðarheimilinu, neyðarvistun, meðferðardeild og stuðningsheimilið Fannafold en húsnæði Stuðla var upphaflega hugsað til að taka á móti ungmennum með fíkni- eða hegðunarvanda.
Lýsti hann m.a. í þættinum hvernig vistun barna í gæsluvarðhaldi og afplánun ætti það til að setja þjónustu við önnur börn í uppnám. Blöndun hópa barna með flókin og ólík vandamál væri sömuleiðis orðin allt of mikil að sögn Úlfars.