Erlendur betlari ónáðaði fólk í Breiðholti í dag, nánar tiltekið í póstnúmeri 109.
Frá þessu greinir lögreglan í dagbók sinni og segir að í viðræðum við betlarann hafi komið í ljós að viðkomandi hafði mikið fé í fórum sínum.
Ekki er greint nánar frá málavöxtum eða -lyktum.