Icelandair í samstarf við tvö erlend flugfélög

Frá vinstri: H.E. Kalistat Lund, ráðherra landbúnaðar-, orku- og umhverfismála …
Frá vinstri: H.E. Kalistat Lund, ráðherra landbúnaðar-, orku- og umhverfismála á Grænlandi, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Jacob Nitter Sørensen, forstjóri Air Greenland, Jóhanna á Bergi, forstjóri Atlantic Airways, Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og Hanna í Horni, sendiherra Færeyja á Íslandi. Ljósmynd/Icelandair

Icelandair skrifaði undir tvo samstarfssamninga um sammerkt flug á Hringborði Norðurslóða í dag. Voru samningar gerðir við Air Greenland og færeyska flugfélagið Atlantic Airways.

Með samningunum geta flugfélögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiða í gegnum Ísland.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Eyþjóðir á norðurslóðum

Segir þar að gert sé ráð fyrir að tvíhliða samningar um sammerkt flug taki að fullu gildi á fyrsta ársfjórðungi næsta árs í tilfelli Atlantic Airways og Icelandair og um mitt næsta ár hjá Air Greenland og Icelandair.

„Við eigum það sameiginlegt að vera eyþjóðir á Norðurslóðum sem reiða sig á öflugar flugsamgöngur til þess að tengja við umheiminn og stuðla að hagsæld. Með formlegu samstarfi flugfélaganna og þeim slagkrafti sem því fylgir munum við styrkja samgöngur á vestnorræna svæðinu og á Norðurslóðum enn frekar sem er mikilvæg forsenda framtíðaruppbyggingar í þessum heimshluta.

Þá erum við ánægð með að tengja Grænland og Færeyjar inn í okkar víðtæka sölu- og dreifikerfi í Norður-Ameríku, Evrópu og á fjarmörkuðum eins og Asíu. Þannig komum við þessum frábæru áfangastöðum enn betur á kortið enda eru mikil tækifæri í ferðaþjónustu á þessum svæðum,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

Styrkir sameiginlegar stoðir

Segir hann Hringborð Norðurslóða hafa á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur umræðu um málefni Norðurslóða í heiminum og með árlegu þingi sínu hér á landi gert Ísland að miðstöð þessarar umræðu.

„Það er því sérstaklega ánægjulegt að skrifa undir þessa samninga hér á þessum vettvangi.“

Jóhanna á Bergi, forstjóri Atlantic Airways, segir félagið spennt fyrir auknu samstarfi við systurþjóð sína í norðvestri. Samstarfið muni tengja þjóðirnar enn betur saman og styrkja sameiginlegar stoðir.

Þá sé samkomulagið ekki eingöngu mikilvægt fyrir fyrirtækin viðskiptalega heldur einnig fyrir löndin, þar sem það stuðlar að auknum tengslum og vaxtartækifærum.

„Tengingar við umfangsmikið leiðakerfi Icelandair hefur marga kosti í för með sér og gerir okkur kleift að vinna saman að því að veita farþegum okkar betri og sveigjanlegri þjónustu. Með því að tengja leiðakerfin aukum við sýnileika okkar og vinnum saman að því að festa þjóðirnar í norðvestri í sessi sem spennandi áfangastaði,“ segir forstjóri Atlantic Airwaves.

Geri ferðamönnum auðveldara að kynnast ríkri menningu

Jacob Nitter Sørensen, forstjóri Air Greenland, segir í tilkynningunni að um tímamótasamning sé að ræða og að félagið sé hæstánægt með að efla tengingar á milli Norðurlanda og um Norðurslóðir.

„Með samstarfi við Icelandair og Atlantic Airways byggjum við brýr milli samfélaga okkar, opnum nýjar gáttir og gerum ferðamönnum enn auðveldara að kynnast ríkri menningu og stórfenglegri náttúru okkar norðlægu landa. Saman búum við til tengingar og styrkjum böndin á milli Norðurlanda og Norðurslóða, frá Færeyjum og Íslandi til Grænlands og áfram til Núnavút í Norður-Kanada. Samstarfið er spennandi varða á leið okkar að því að tengja norðrið betur en nokkru sinni fyrr.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert