Ingveldur Anna býður sig fram í þriðja sæti

Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir.

Ingveldur Anna Sigurðardóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

„Verkefnin fram undan eru stór. Verðbólgan er á niðurleið en það er mikilvægt að tryggja áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum. Við þurfum að stuðla að nýsköpun, styrkja atvinnulífið og að skapa umhverfi þar sem ungt fólk getur séð framtíð sína hér heima. Öflugur Sjálfstæðisflokkur er grundvöllur áframhaldandi hagvaxtar og bættra lífskjara,“ segir hún í tilkynningu.

„Ég hef öðlast reynslu af stjórnsýslunni sem löglærður fulltrúi sýslumanns síðastliðinn þrjú ár og einnig sem varaþingmaður, til að mynda tók ég sæti sem þingmaður við afgreiðslu breytinga á lögum um útlendinga,“ bætir hún við og segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að horfast í augu við nýja tíma og mæta sterkan til leiks í kosningunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert