Svandís þakkar Bjarna fyrir samstarfið

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Eyþór

Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, hefur þakkað Bjarna Jónssyni, þingmanni flokksins, fyrir samstarfið, en Bjarni greindi frá því í dag að hann hefði sagt skilið við flokkinn. 

„Bjarni Jónsson hefur nú ákveðið að segja skilið við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og þingflokkinn jafnframt. Bjarni gerði mér og formanni þingflokks grein fyrir þessari niðurstöðu sinni nú eftir hádegið. Hér er þakkað fyrir samstarf á langri leið og Bjarna fylgja góðar óskir við þessi kaflaskil,“ segir Svandís í færslu sem hún birti á Facebook. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert