Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Hafþór Einarsson er skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu greininga og fjármál og Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar.
Hafþór er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og réttindi til kennslu í grunn- og framhaldsskólum. Hann hefur verið sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu greininga og fjármála hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu frá árinu 2022 og settur skrifstofustjóri til eins árs frá byrjun árs 2024.
Halldóra er með BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands, félagsráðgjöf til starfsréttinda og diplómu á meistarastigi í réttarfélagsráðgjöf við frá sama skóla. Á árunum 2022 til 2024 var Halldóra teymisstjóri og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu og settur skrifstofustjóri til eins árs frá byrjun árs 2024.
Bæði hafa þau reynslu af breytingastjórnun og stjórnun krefjandi verkefna auk sérþekkingar Hafþórs á fjármálastjórn og áætlanagerð á vegum hins opinbera og sérþekkingar Halldóru á stefnumótun og innleiðingu en hún kom m.a. að innleiðingu og lagaumgjörð um farsæld barna.