Bifreið hafnaði á ljósastaur

Fjórir enduðu í fangaklefa.
Fjórir enduðu í fangaklefa. Ljósmynd/Colourbox

Fjórir voru í fangaklefa á höfuðborgarsvæðinu í morgun, að því er fram kemur í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir helstu mál á borði embættisins frá því klukkan 17 í gær og til klukkan 5 í morgun.

Tilkynnt var um umferðaróhapp er tvær bifreiðar skullu saman og önnur hafnaði á ljósastaur. Engin slys urðu á fólki en báðar bifreiðar eru óökuhæfar.

Þá hafði lögregla í gær afskipti af þónokkrum ökumönnum sem voru grunaðir um akstur undir áhrifum, þar á meðal einum sem lenti í umferðaróhappi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert