Fyrrverandi starfsfólki „sé haldið í spennitreyju“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hákon Pálsson

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur birt opið bréf til starfsfólks Samherja í kjölfar umfjöllunar Heimildarinnar sem birtist í dag.

„Heimildin birti í dag umfjöllun um mál sem hefur verið til rannsóknar í fimm ár. Þar er því haldið fram að upplýsingarnar varpi nýju ljósi á málsatvik. Svo er ekki,“ segir Þorsteinn í bréfinu.

Hann segir umfjöllun Heimildarinnar hvorki hnika né hreka fyrri yfirlýsingum hans um málið – þær standi óhaggaðar.

Umfjöllunin megi ekki raska vinnufriðnum

Segir hann sér þykja mjög miður og óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis. Miðað við þær upplýsingar sem liggi fyrir megi reikna með að þannig verði það áfram.

„Eins og ég hef áður sagt þá munum við verjast þessum ásökunum af fullum þunga en málið verður ekki rekið í fjölmiðlum,“ segir Þorsteinn við starfsfólk sitt.

„Aðalatriðið er að þið látið ekki þessa umfjöllun raska vinnufriðnum og haldið áfram ykkar góðu verkum. Vikan sem er að líða gekk vel, tíðarfarið hefur verið gott, skipin fiska vel, vinnslurnar eru öflugar að vanda og þá borðaði fiskurinn vel í eldinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka