Svavar settur sýslumaður á Austurlandi

Svavar Pálsson mun bæði gegna embætti sýslumanns á Austurlandi og …
Svavar Pálsson mun bæði gegna embætti sýslumanns á Austurlandi og Norðurlandi eystra. Samsett mynd

Dómsmálaráðherra hefur sett Svavar Pálsson, sýslumanninn á Norðurlandi eystra, tímabundið sem sýslumann á Austurlandi frá 1. nóvember 2024 til og með 31. október 2025.

Svavar Pálsson mun gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.

Lárus Bjarnason, skipaður sýslumaður á Austurlandi lætur frá sama tíma af embætti fyrir aldurs sakir en hann var skipaður sýslumaður þar árið 2015. Áður hafði Lárus verið skipaður bæjarfógeti og síðar sýslumaður í Norður-Múlasýslu árið 1989.

Auka hagkvæmni reksturs

Innan umdæmisins á Norðurlandi eystra getur almenningur nálgast þjónustu sýslumanns á fimm starfsstöðvum; Á Akureyri, Húsavík, Siglufirði, Þórshöfn og Dalvík. Á Austurlandi er þjónustan aðgengileg á Seyðisfirði, Eskifirði, Egilsstöðum og Vopnafirði.

Sú ákvörðun að setja sýslumann yfir tvö embætti samræmist áherslum yfirvalda í málefnum sýslumanna, þar á meðal að bæta þjónustuna við almenning með því að fella niður áhrif umdæmismarka og auka hagkvæmni við rekstur embættanna.

Þannig hefur Kristín Þórðardóttir, sýslumaðurinn á Suðurlandi, verið sett tímabundið yfir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum frá október 2023 og Birna Ágústsdóttir yfir sýslumannsembættið á Vesturlandi frá júní 2024.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka