Rafmagn komið á Hvanneyri en ekki í Þverárhlíð

Hvanneyri.
Hvanneyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Rafmagn er komið aftur á á Hvanneyri, að því er segir í tilkynningu frá Rarik. Þar kemur fram að þar sé ekki von á frekara rafmagnsleysi.

Enn er rafmagnslaust í Þverárhlíð en verið er að leita að bilun.

Þau sem hafa upplýsingar sem gætu hjálpað til við bilanaleit eru beðin um hafa samband við stjórnstöð Rarik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert