Börn köstuðu flugeldum í hús

Myndin tengist fréttinni óbeint.
Myndin tengist fréttinni óbeint. mbl.is/Árni Sæberg

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna hóps ungmenna sem léku sér að því ónáða íbúa í Árbænum. 

Í dagbók lögreglu segir að börnin köstuðu flugeldum í hús, en ekki segir frá málalyktum. 

Þá voru foreldrar boðaðir á lögreglustöð til þess að sækja ungmenni sín sem voru undir áhrifum áfengis og undir aldri, líkt og síðustu nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert