Ákvörðun Sigríðar vonbrigði

Sigríður hefur alla ævi verið virk í Sjálfstæðisflokknum, að sögn …
Sigríður hefur alla ævi verið virk í Sjálfstæðisflokknum, að sögn Bjarna. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/mbl.is/Arnþór

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn hafi alltaf litið á Sigríði Á. Andersen sem vin sinn og félaga.

„Hún hefur alla ævi verið virk í Sjálfstæðisflokknum. Það eru auðvitað vonbrigði að hún kjósi að fara í framboð fyrir annað stjórnmálaafl. Það er eftirsjá af henni í flokkstarfi sjálfstæðismanna,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is.

Tilkynnt var í gær um að Sig­ríður, sem er fyrr­ver­andi ráðherra og þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, hefði fall­ist á að leiða lista Miðflokks­ins í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­anna í kom­andi kosn­ing­um.

„Ég hefði frekar kosið að hafa hana með í baráttunni í kosningunum heldur en að sjá hana fara í annað stjórnmálaafl,“ segir Bjarni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert