Fara yfir atburðarásina 2. október

Víðtækt rafmagnsleysi varð á Norður- og Austurlandi þann 2. október.
Víðtækt rafmagnsleysi varð á Norður- og Austurlandi þann 2. október. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Fyrirtækin RARIK og Landsnet hafa boðað til íbúafundar í Skjólbrekku á fimmtudag klukkan 16.30 þar sem farið verður yfir atburðarásina þann 2. október sem leiddi til víðtækra rafmagnstruflana í sveitarfélaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þingeyjarsveit.

Á fundinum verður einnig farið yfir afgreiðslu tjónamála og stöðu þeirra mála.

Segir í tilkynningunni að tækifæri muni gefast fyrir spurningar og umræðu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert