Grindavík opnuð: „Fólk verður að vera á varðbergi“

Opnað var fyrir aðgengi almennings að Grindavík klukkan 6 í …
Opnað var fyrir aðgengi almennings að Grindavík klukkan 6 í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Opnað var fyrir aðgengi að Grindavíkurbæ á nýjan leik klukkan 6 í morgun. Fjarlægja átti lokunarpósta þannig að hægt væri að aka inn í bæinn hindrunarlaust.

Í síðustu viku var tilkynnt á upplýsingafundi Grindavíkurnefndarinnar að opna fyrir aðgengi að Grindavík í samráði við ríkislögreglustjóra. Almannavarnarstig í bænum hefur verið fært af hættustigi yfir á óvissustig.

Þrátt fyrir að ýmsar öryggisráðstafanir auki öryggi í bænum hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum lagt áherslu á að íbúar og gestir dvelja inni á hættusvæði á eigin ábyrgð. Þá hefur hann einnig undirstrikað að Grindavík sé ekki staður fyrir börn.

Ýmsar hættur í og við Grindavík

„Við vonum að þetta gangi allt saman vel en brýnum fyrir fólki og ferðamönnum að gæta fyllstu varúðar. Það eru ýmsar hættur í og við Grindavík og fólk verður að vera á varðbergi,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, við mbl.is.

Hjördís segir að almannavarnir muni fylgjast vel með og verða áfram í góðri samvinnu við Veðurstofu Íslands en í tilkynningu frá Veðurstofunni fyrir helgi kom fram að haldi kvikusöfnum áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegast að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúkagígaröðinni í kjölfarið.

„Það má alveg búast við því ferðamenn geri sér leið inn í Grindavík og vilji skoða aðstæður og við hvetjum þá sem skipuleggja ferðir á staðinn að koma skilaboðum til fólks að fara öllu með gát og hlýði tilmælum,“ segir Hjördís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert