Halla fagnar afmæli norrænu sendiráðanna í Berlín

Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason.
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og eiginmaður hennar Björn Skúlason eru nú stödd Þýskalandi vegna 25 ára afmælis norrænu sendiráðanna í Berlín.

Í tilefni afmælisins er efnt til hátíðardagskrár með þátttöku þjóðhöfðingja og fulltrúa konungsfjölskyldna Norðurlanda. Meðan á heimsókninni stendur á Halla einnig tvíhliða fundi með forseta Þýskalands og forseta Finnlands. Þá hittir hún fulltrúa Íslendingasamfélagsins í Berlín og heimsækir tvo háskóla í borginni, að því er segir í tilkynningu.

„Sendiráð Norðurlandanna í Berlín voru opnuð þann 20. október 1999 og reka þau þar sameiginlegu menningarmiðstöðina Felleshus þar sem efnt er til ýmissa norrænna menningarviðburða. Fyrirkomulagið, sem er einstakt á heimsvísu, hefur reynst afar vel og orðið til þess að efla enn frekar náið samstarf Norðurlanda í Þýskalandi,“ segir í tilkynningunni.

Um 400 gestir

Á fjórða hundrað gesta sækja 25 ára afmælishátíðina sem verður haldin á sendiráðssvæðinu síðdegis í dag. Þar verða tónlistaratriði og mun forseti Þýskalands flytja ávarp, auk forseta Íslands og forseta Finnlands, og einnig Hákon, krónprins Noregs, og Viktoría, krónprinsessa Svíþjóðar.

Í kvöld býður svo Þýskalandsforseti þjóðhöfðingjum og ríkisörfum Norðurlanda auk sendinefnda til hátíðarkvöldverðar í forsetahöllinni, Schloss Bellevue. Þar flytur Friðrik X. Danakonungur ræðu fyrir hönd Norðurlandaþjóðanna.

Boðin velkomin við athöfn við forsetahöllina

Áður en hátíðardagskráin hefst í dag bjóða Frank-Walter Steinmeier Þýskalandsforseti og Elke Büdenbender, eiginkona hans, forsetahjón Íslands velkomin með athöfn við forsetahöllina, þar sem þjóðsöngvar beggja landa verða leiknir að viðstöddum heiðursverði.

Við tekur tvíhliða fundur forseta Þýskalands og Íslands, sem Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sitja einnig ásamt forsetaritara. Þá á forseti hádegisverðarfund með Alexander Stubb, forseta Finnlands.

Forseti heimsækir einnig tvo háskóla í Berlín. Sá fyrri er Hertie-háskólinn sem undirbýr nemendur fyrir leiðtogahlutverk í stjórnsýslu, viðskiptum og stjórnmálum. Þar ræðir Halla við starfsmenn og nemendur á opnum fundi. Á morgun fer hún í Humboldt-háskólann en þar er öflug Norður-Evrópudeild sem kennir íslensk og norræn fræði. Forseti á þar fund með rektor háskólans um leiðir til að styrkja frekar háskólasamstarf milli Íslands og Þýskalands.

Hitta Íslendinga úr viðskipta- og menningarlífinu í Berlín

Á morgun hitta forsetahjónin Íslendinga úr viðskipta- og menningarlífinu í Berlín og sækja loks síðdegismóttöku í sendiráðsbústað Íslands.

Forsetahjónin koma aftur til Íslands á miðvikudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert