Hildur til liðs við Lýðræðisflokkinn

Hildur Þórðardóttir.
Hildur Þórðardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hildur Þórðardóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Lýðræðisflokkinn. Þessu greinir hún frá í tilkynningu.

„Ég hef þekkt Arnar Þór Jónsson af góðu í mörg ár og leiðir okkar oft skarast á undanförnum árum, í tengslum við Málfrelsisfélagið, ýmis konar átökum gegn spillingu og áróðri og nú síðast baráttu gegn ólöglegum vopnakaupum íslenskra ráðamanna fyrir almannafé,“ segir hún í tilkynningunni.

„Gildi okkar og baráttumál eru svipuð: réttlæti, heiðarleiki, sanngirni, trú á æðri mátt, málfrelsi, skoðanafrelsi, uppræta spillingu, koma auðlindum í þjóðareign og bæta kjör almennings.

Þess vegna hef ég ákveðið að ganga til liðs við Lýðræðisflokkinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert