Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verður í 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn.
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, leiðir listann og í 2. sæti er Pawel Bartoszek, stærðfræðingur. Í 4. sæti er Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, klínískur barnasálfræðingur.
Framboðslistar Viðreisnar í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á fundi svæðisráðs flokksins fyrr í kvöld.
Í tilkynningunni er haft eftir Hönnu Katrínu að hún sé fyrst og fremst þakklát fyrir það mikla traust sem henni er sýnt.
„Svo er ég algjörlega í skýjunum með þennan sterka og fjölbreytta lista sem við erum að tefla fram. Það verður óhemju gaman að fara inn í þessa kosningabaráttu með öllu þessu frábæra fólki.
Viðreisn hefur nýtt tímann vel undanfarin ár. Við höfum hlustað á fólkið og erum, í þeim anda, að setja fram lausnir sem fólk hefur kallað eftir úti í samfélaginu um árabil. Ég gæti ekki verið spenntari fyrir komandi vikum. Við hreinlega iðum í skinninu,“ er haft eftir oddvitanum í tilkynningunni.
Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í heild sinni: