Hinn grunaði er sonur hinnar látnu

Maðurinn er sonur hinnar látnu.
Maðurinn er sonur hinnar látnu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður um fertugt var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. nóvember á grundvelli rannsóknarhagsmuna í þágu rannsóknar á andláti konu á sjötugsaldri í gærkvöld. Er maðurinn sonur hinnar látnu.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem gerði kröfuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, segir að tilkynning hafi borist lögreglu um miðnætti. 

Héldu viðbragðsaðilar þegar á vettvang, sem var í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti. Strax voru hafnar endurlífgunartilraunir, en þær báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin.

Lögregla getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka