Brú yfir Markarfljót á Hringvegi austan við Hvolsvöll verður lokað frá klukkan 19:30 til 20:30 í kvöld, 24. október.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar.
Segir þar að brúin sé lokuð á meðan unnið sé að viðgerð á legum hennar.