Snarpar hviður í fyrramálið

Gera má ráð fyrir snörpum hviðum undir Hafnarfjalli.
Gera má ráð fyrir snörpum hviðum undir Hafnarfjalli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gera má ráð fyrir snörpum vindhviðum á milli klukkan 6 og 9 í fyrramálið undir Hafnarfjalli og á utanverðu Kjalarnesi.

Þetta segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, í ábendingu til vegfarenda. 

„Í fyrramálið hvessir af suðaustri á undan skilum lægðar sem fara hratt yfir,“ segir Einar í ábendingu sinni.

„Á milli kl. 6 og 9 má gera ráð fyrir snörpum hviðum allt að 35 m/s undir Hafnarfjalli og á utanverðu Kjalarnesi. Um og yfir 35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi um svipað leyti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert