„Sveima eins og hrægammar yfir ráðstöfunartekjum heimilanna“

Vilhjálmur gagnrýnir hagnað viðskiptabankanna.
Vilhjálmur gagnrýnir hagnað viðskiptabankanna. Samsett mynd

Viðskiptabankarnir þrír halda áfram á ofurhraða að sópa til sín fé frá einstaklingum, heimilum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í færslu á Facebook en gríðarlegur hagnaður bankanna fer ekki vel í verkalýðsleiðtogann frá Akranesi.

„Í gær tilkynnti Landsbankinn að hagnaður bankans sé á fyrstu níu mánuðum ársins 26,9 milljarðar og hreinar vaxtatekjur nemi 44,1 milljarði og arðsemi eigin fjár sé 11,7% og hafi aukist 1,6%.

Einnig kom í fréttum að Íslandsbanki hagnist eins og enginn sé morgundagurinn og hagnaður á þriðja ársfjórðungi hafi numið 7,3 milljörðum og hreinar vaxtatekjur séu 11,8 milljarðar á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eigin fjár 13,2% á ársgrundvelli.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hugsið ykkur að frá árinu 2021 til þriðja ársfjórðungs þessa árs nema hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna 517,9 milljörðum og inni í því eru ekki hreinar vaxtatekjur Arion banka fyrir þriðja ársfjórðung en Arion banki mun tilkynna afkomu sína vegna þriðja ársfjórðungs 30 október,“ segir Vilhjálmur.

Vilhjálmur segir að viðskiptabankarnir sveimi eins og hrægammar yfir ráðstöfunartekjum heimilanna og steypa sér á ógnarhraða og læsa klónum í heimilistekjur fjölskyldna og færa þær yfir í fjárhirslur sínar.

Búa til nýtt húsnæðislánakerfi

„Það verður að taka á fjármálakerfinu og búa til hér nýtt húsnæðislánakerfi þar sem hægt verður að taka húsnæðislán á viðráðanlegum kjörum óverðtryggt til langs tíma. Það er ekkert eðlilegt að við Íslendingar þurfum að greiða tvöfalt jafnvel þrefalt hærri vexti en neytendur á Norðurlöndunum,“ segir Vilhjálmur enn fremur.

Hann segir að núverandi fjármálakerfi sé ekkert náttúrulögmál heldur mannanna verk sem klárlega megi breyta þar sem hagsmunir almennings verði hafðir að leiðarljósi.

 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka