Maður kom í dag í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu með stungusár á fæti. Sá var fluttur á bráðamóttökuna til skoðunar.
Lögreglan handtók annan mann skömmu síðar grunaðan um verknaðinn.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu.