Segir VG ekki skilja eftir sig gott bú

Flokkssysturnar Svandís Svavarsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafa báðar verið …
Flokkssysturnar Svandís Svavarsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafa báðar verið matvælaráðherra á þessu kjörtímabili. Samsett mynd

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að honum finnist Vinstri græn (VG) ekki hafa skilið eftir sig gott bú í matvælaráðuneytinu.

Morg­un­blaðið greindi frá því í dag að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra, hefði fengið Jón sem sér­stak­an ráðgjafa í mat­vælaráðuneytið.

Finnst þér VG skilja eftir sig gott bú í ráðuneytinu?

„Nei, í sjálfu sér finnst mér það ekki,“ svarar Jón í samtali við mbl.is.

Fólk í atvinnulífinu bíður eftir afgreiðslu mála

Hann kveðst hafa heyrt í mönnum í hinum ýmsu greinum atvinnulífsins sem heyra undir ráðuneytið, eins og til dæmis í landbúnaði, sjávarútvegi og garðyrkju.

„Það er alveg ljóst að það er á þeim bæjum verið að bíða eftir afgreiðslu mála og verið að reyna að koma einhverjum skoðunum á framfæri varðandi einhver mál og það er eitthvað sem við munum skoða og sjá hverju er hægt að bregðast við á skömmum tíma,“ segir Jón.

Hvalur hf. sent inn umsókn

Í samtali við mbl.is fyrr í dag sagði Bjarni að Jón yrði eins og aðstoðarmaður eða ráðgjafi sinn vegna ýmissa mála sem eru í stjórnsýslulegri meðferð í ráðuneytinu.

Hval­ur hf. hef­ur sent um­sókn um leyfi hval­veiða til mat­vælaráðuneyt­is­ins. Spurður hvort Jón hefði verið sér­stak­lega feng­inn til að vinna í hval­veiðimál­um svar­aði Bjarni:

„Þetta er fyrst og fremst al­mennt verk­efni vegna allra þeirra mála sem heyra und­ir ráðuneytið. Þau eru marg­vís­leg, sum af stjórn­sýslu­leg­um toga og önn­ur geta verið dagsdagleg verk­efni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert