Sigríður og Snorri leiða Miðflokkinn í Reykjavík

Sigríður Á. Andersen og Snorri Másson munu leiða Miðflokkinn í …
Sigríður Á. Andersen og Snorri Másson munu leiða Miðflokkinn í Reykjavíkurkjördæmunum. Samsett mynd

Snorri Másson og Sigríður Á. Andersen munu leiða framboðslista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður en listar flokksins í báðum Reykjavíkurkjördæmunum eru nú tilbúnir.

Greint var frá fyrr í kvöld að Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmaður Flokks fólksins, væri genginn til liðs við Miðflokkinn og hefur nú komið í ljós að hann muni skipa annað sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Þar á eftir koma Bessí Þóra Jónsdóttir, doktorsnemi í atferlishagfræði, og Einar Jóhannes Guðnason, viðskiptastjóri.

Í Reykjavíkurkjördæmi suður skipar Þorsteinn Sæmundsson fyrrverandi alþingismaður annað sæti.

Þar á eftir koma þau Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokksins, og Hilmar Garðars Þorsteinsson, lögmaður.

Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í heild sinni:

1. Sigríður Á. Andersen, lögmaður

2. Jakob Frímann Magnússon, alþingismaður

3. Bessí Þóra Jónsdóttir, doktorsnemi í atferlishagfræði

4. Einar Jóhannes Guðnason, viðskiptastjóri

5. Jón Ívar Einarsson, læknir

6. Erna Valsdóttir, fv. fasteignasali

7. Ásta Karen Ágústsdóttir, dómritari og laganemi

8. Ólafur Kristinn Guðmundsson, umferðarsérfræðingur

9. Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri

10. Svavar Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur

11. Fabiana Martins De Almeida Silva, aðhlynning

12. Haukur Einarsson, sölumaður

13. Ágúst Karlsson, verkfræðingur

14. Bjarki Ólafur Hugason, leiðsögumaður

15. Eva Þorsteinsdóttir, heimavinnandi

16. Stefán Hans Stephenssen, ellilífeyrisþegi

17. Bjarney Kristín Ólafsdóttir, sjúkraliði

18. Guðmundur Bjarnason, verkamaður

19. Kristján Orri Hugason, háskólanemi

20. Ellert Scheving Markússon, framkvæmdastjóri

21. Sigfús Arnþórsson, hljómlistamaður

22. Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur, fv. alþingismaður og borgarfulltrúi

Sigríður Á. Andersen, Jakob Frímann Magnússon, Bessí Þóra Jónsdóttir og …
Sigríður Á. Andersen, Jakob Frímann Magnússon, Bessí Þóra Jónsdóttir og Einar Jóhannes Guðnason. Samsett mynd

Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í heild sinni:

1. Snorri Másson, blaðamaður og rithöfundur

2. Þorsteinn Sæmundsson, fv. alþingismaður

3. Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks

4. Hilmar Garðars Þorsteinsson, lögmaður

5. Danith Chan, lögfræðingur

6. Sólveig Bjarney Daníelsdóttir, aðstoðardeildarstjóri

7. Sveinn Guðmundsson, fiskútflytjandi

8. Ólafur Vigfússon, kaupmaður

9. Bóas Sigurjónsson, laganemi

10. Garðar Rafn Nellett, varðstjóri

11. Björn Guðjónsson, ellilífeyrisþegi og nemandi í fornleifafræði

12. Dorota Anna Zaorska, fornleifafræðingur

13. Jafet Bergmann Viðarsson, matreiðslumaður

14. Guðlaugur Gylfi Sverrisson, viðskiptastjóri

15. Jón A Jónsson, vélvirkjameistari

16. Gunnlaugur A. Júlíusson, hagfræðingur og leiðsögumaður

17. A Jóhann Árnason, viðskipta- og tölvunarfræðingur

18. Katrín Haukdal Magnúsdóttir, náms- og starfsráðgjafi

19. Viktor Hrafn Gudmundsson, vörustjóri hugbúnaðargerðar

20. Jóhanna Eiríksdóttir, útfarastjóri

21. Halldór Gunnarsson, viðskiptafræðingur

22. Snorri Þorvaldsson, ellilífeyrisþegi

Snorri Másson, Þorsteinn Sæmundsson, Fjóla Hrund Björnsdóttir og Hilmar Garðars …
Snorri Másson, Þorsteinn Sæmundsson, Fjóla Hrund Björnsdóttir og Hilmar Garðars Þorsteinsson. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka