Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla.
Rúnar Sigurjónsson vélvirki og formaður Fornbílaklúbbs Íslands skipar 3. sæti listans og í 4. sæti er Helga Þórðardóttir kennari, sem hefur gegnt stöðu varaborgarfulltrúa flokksins frá árinu 2022.
- Inga Sæland, alþingismaður, Reykjavík
- Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi, Reykjavík
- Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og framkvæmdastjóri, Reykjavík
- Helga Þórðardóttir, kennari og varaborgarfulltrúi, Reykjavík
- Svavar Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur, Reykjavík
- Guðrún Ósk Jakobsdóttir, formaður fimleikadeildar Fylkis, Reykjavík
- Svanberg Hreinsson, framreiðslumaður, Mosfellsbæ
- Halldóra Gestsdóttir, hönnuður, Reykjavík
- Birgir Jóhann Birgisson, tónlistamaður, Reykjavík
- Valur Sigurðsson, rafvirki, Reykjavík
- Guðný Erla Jakobsdóttir, leikskólakennari og þjálfari, Hafnafirði
- Ómar Örn Ómarsson, verkamaður, Reykjavík
- Hjördís Björg Kristinsdóttir, sjúkraliði, Reykjavík
- Sigurjón Arnórsson, framkvæmdastjóri, Kópavogi
- Þóra Bjarnveig Jónsdóttir, handverkskona, Reykjavík
- Kristján Arnar Helgason, eldri borgari, Reykjavík
- Guðbergur Magnússon, ellilífeyrisþegi, Reykjavík
- Magano Katrina Shiimi, sjúkraliði, Mosfellsbæ
- Óli Már Guðmundsson, listamaður, Reykjavík
- Hilmar Guðmundsson, eldri borgari, Reykjavík
- Þórarinn Kristinsson, eldri borgari, Reykjavík
- Sigríður Sæland Jónsdóttir, húsmóðir, Reykjavík