Ragnar Þór Ingólfsson VR-formaður leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík norður er landsmenn ganga til kosninga eftir mánuð. Frá þessu er greint í tilkynningu flokksins.
Marta Wieczorek grunnskólakennari skipar 2. sæti listans. Hún starfar í Hólabrekkuskóla og er aðstoðarskólastjóri pólska skólans og menningarsendiherra. Marta var kosin Reykvíkingur ársins 2024 fyrir dýrmætt starf í þágu barna í borginni sem kennari.
Björn Þorláksson, blaðamaður og rithöfundur, skipar 3. sæti listans og Andrea Rut Pálsdóttir aðstoðarþjónustustjóri er í 4. sæti. Listinn er ellegar sem hér segir:
1. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Reykjavík
2. Marta Wieczorek, kennari og menningarsendiherra, Reykjavík
3. Björn Jónas Þorláksson, blaðamaður og rithöfundur, Reykjavík
4. Andrea Rut Pálsdóttir aðstoðarþjónustustjóri, Kópavogi
5. Guðrún María Magnúsdóttir grunnskólakennari, Reykjavík
6. Jón Elmar Ómarsson rafvirki, Reykjavík
7. Pálmey Helga Gísladóttir lyfjatæknir, Reykjavík
8. Þráinn Óskarsson framhaldsskólakennari, Reykjavík
9. Birna Melsted heilbrigðisritari, Reykjavík
10. Hafsteinn Ægir Geirsson verkstæðisstarfsmaður, Reykjavík
11. Bára Kristín Pétursdóttir leiðsögumaður, Hafnarfirði
12. Daníel Dúi Ragnarsson nemi, Reykjavík
13. Ingiborg Guðlaugsdóttir eldri borgari, Reykjavík
14. Ólafur Kristófersson fyrrv. bankastarfsmaður, Reykjavík
15. Hildur Júlíusdóttir lífeindafræðingur, Reykjavík
16. Kristján Salvar Davíðsson fyrrv. leigubílstjóri
17. Gefn Baldursdóttir læknaritari, Reykjavík
18. Hallur Heiðar Hallsson hönnuður, Reykjavík
19. Elvý Ósk Guðmundsdóttir þjónustufulltrúi, Reykjavík
20. Gunnar Skúli Ármannsson læknir, Reykjavík
21. Sigríður Sæland Óladóttir hjúkrunarfræðingur, Reykjavík
22. Ingólfur Þórður Jónsson eldri borgari, Kópavogi