Dómur vegna árásar við Borgarholtsskóla stendur

Mikill viðbúnaðar var við Borgarholtsskóla vegna árásarinnar í janúar árið …
Mikill viðbúnaðar var við Borgarholtsskóla vegna árásarinnar í janúar árið 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsréttur hefur staðfest sex mánaða skilorðsbundinn dóm yfir ungum karlmanni fyrir aðild hans að líkamsárásum sem framdar voru í Borgarholtsskóla í janúar 2021.

Maðurinn áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu sem féll í mars á síðasta ári. Hann var þá dæmdur fyrir aðild að tveimur líkamsárásum, annarri þeirra sérstaklega hættulegri. 

Með áfrýjun sinni krafðist maðurinn þess að endurskoðuð yrði niðurstaða Landsréttar um sérstaklega hættulega líkamsárás. Þá krafðist hann þess að skaðabótakröfu yrði vísað frá, eða hún lækkuð.

Gert að greiða allan áfrýjunarkostnað

Landsréttur staðfesti hins vegar dóm héraðsdóms í málinu, en ásamt því að hljóta sex mánaða skilorðsbundinn dóm var manninum gert að öðru fórnarlambinu 300 þúsund krónur og hinu 250 þúsund krónur, ásamt vöxtum. Þá var honum gert að greiða allan kostnað við áfrýjun málsins.

Fjórir karlmenn voru sak­felld­ir í mál­inu í mars á síðasta ári. Þrír hlutu sex mánaða skil­orðsbund­inn dóm en sá fjórði, Gabrí­el Doua­ne, hlaut tveggja ára fang­elsi. Hann var ákærður fyr­ir þátt sinn í árás­inni auk tveggja annarra lík­ams­árása í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Í meðfylgjandi myndskeiði má meðal annars sjá hluta af árásinni, en myndbandið fór í dreifingu á sínum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert