Landsréttur hefur staðfest sjö ára dóm yfir Theodóri Páli Theodórssyni sem var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur börnum.
Þá var Theodór einnig sakfelldur í héraðsdómi fyrir ítrekuð vændiskaup.
Honum var einnig gert að greiða stúlkunum sem hann braut gegn hvorri um sig miskabætur að fjárhæð 3.000.000 króna.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Theodór í febrúar á þessu ári í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára, fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, fyrir kaup á vændi og fyrir að hafa í vörslum sínum myndefni sem sýndi börn nakin og á kynferðislegan máta.
Landsréttur staðfesti þennan dóm í gær.
Í niðurstöðukafla dómsins segir að brot Theodórs hafi beinst gegn mikilvægum verndarhagsmunum ungra stúlkna á viðkvæmu aldurs- og þroskaskeiði, en framburður beggja brotaþola og vitna hafi verið til marks um að brotin hafi valdið þeim mikilli vanlíðan.
„Ljóst er af þeim gögnum sem fyrir liggja í málinu sem og vitnisburðum að brot ákærða voru einbeitt og skipulögð, þar sem hann nálgaðist aðra stúlkuna undir ólíkum nöfnum og á mismunandi forsendum á samskiptaforritinu Snapchat. Ákærði notfærði sér gróflega ungan aldur og þroskaleysi stúlknanna í samskiptum við þær og skeytti engu um afleiðingar brotanna. Brot hans eru sérlega ófyrirleitin og á hann sér engar málsbætur,“ segir Landsréttur.