Heitar umræður sköpuðust þegar Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna mætti í settið til Stefáns Einars Stefánssonar og sat fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má sjá í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.
Í skoðanakönnun Prósents í liðinni viku mældist flokkur Svandísar, Vinstrihreyfingin grænt framboð, með sögulega lágt fylgi. Svo virðist sem brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sé að draga dilk á eftir sér og hafi áhrif á fylgi flokksins í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Svandís hyggst nú leggja allt sitt kapp á að auka fylgi flokksins um land allt ásamt sínu fólki og verður spennandi að fylgjast með hvernig til tekst.
Þá fór Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, yfir nýjustu tölur úr könnun Prósents í þættinum sem snerta á fylgi flokkanna og þykja nýjustu tölur miklum tíðindum sækja.
Auk Svandísar mættu þeir Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar í settið og rýndu helstu fréttir vikunnar þar sem mest hefur farið fyrir stjórnmálunum.
Ekki missa af spennandi og upplýsandi kosningaumræðu í Spursmálum hér á mbl.is alla þriðjudaga og föstudaga fram að þingkosningum þann 30. nóvember.