Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, segir að máli Alberts Guðmundssonar, knattspyrnumanns, hafi verið áfrýjað sökum þess að embættið telji dóm héraðsdóms „efnislega rangan“. Þetta kemur fram í svari við skriflegri fyrirspurn mbl.is.
Þá kemur einnig fram að embættið telji „verulegar líkur“ á því að niðurstöðu dómsins verði breytt úr sýknu í sekt.
„Ákvörðun um áfrýjun í þessu máli, líkt og í öðrum sýknumálum sem er áfrýjað, byggist á því mati ríkissaksóknara að ákærði hafi ranglega verið sýknaður, þ.e. með að dómurinn sé efnislega rangur, og að verulegar líkur séu á að sýknu verði snúið í sakfellingu fyrir Landsrétti.“