Ungir Framsóknarmenn á B5

Kosningamiðstöðin mun opna á Bankastræti 5.
Kosningamiðstöðin mun opna á Bankastræti 5. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samband ungra Framsóknarmanna ætlar að opna kosningamiðstöð fyrir ungt fólk á Bankastræti 5 þar sem skemmtistaðurinn B5 var áður til húsa.

Kosningamiðstöðin mun opna á föstudagskvöld klukkan 20. 

Í tilkynningu frá ungum Framsóknarmönnum segir að stefnt sé að því að hafa opið alla daga fram að kosningum þar sem ungir Framsóknarmenn vilja bjóða ungu fólki upp á samastað fyrir kosningarnar til þess að ræða um stjórnmál og pólitík. 

„Það verður ekki gerð krafa um lopapeysur í hurðinni fyrst um sinn en þó er aldrei að vita nema við sláum upp lopapeysuballi þegar að nær dregur kosningum,“ er haft eftir Gunnari Ásgrímssyni, formanni Sambands ungra Framsóknarmanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka